Islândia, Visir, Islandês

[ad_1]

Brynja Rán Knudsen, Þróttur

Brynja spilaði sína fyrstu leiki með Þrótti sumarið 2022, þá aðeins fimmtán ára, og skoraði eitt mark í Bestu deildinni. Í fyrra voru leikirnir átta og þeim mun fjölga mikið í sumar enda verður Brynja að öllum líkindum í stóru hlutverki í liði Þróttar. Þessi feykilega efnilegi leikmaður hefur leikið fjórtán leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir, Valur

Valur klófesti einn efnilegasta leikmann landsins þegar félagið fékk Ragnheiði frá Haukum í vetur. Hún er sextán ára framherji sem skoraði þrettán mörk í 2. deildinni í fyrra auk þriggja marka í tveimur bikarleikjum. Ragnheiður hefur leikið 25 leiki fyrir yngri landsliðin og skorað fimm mörk. Er þarna komin fram ný Sara Björk Gunnarsdóttir eða Alexandra Jóhannsdóttir?

Bríet Fjóla Bjarnadóttir er mjög efnilegur leikmaður sem er að koma upp hjá Þór/KA.Vísir/ÓskarÓ

Bríet Fjóla Bjarnadóttir, Þór/KA

Mikla athygli vakti þegar Bríet kom inn á í 3-2 sigri Þórs/KA á Breiðabliki í úrslitakeppni efri hluta Bestu deildarinnar í fyrra. Hún var þá aðeins þrettán ára. Þrátt fyrir að vera aðeins nýfermd má ætla að Bríet fái sín tækifæri með Þór/KA í sumar en hún spilaði fjóra leiki og skoraði eitt mark í Lengjubikarnum. Það verður afar áhugavert að fylgjast með framgangi þessa gríðarlega efnilega leikmanns á næstu árum.

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir, Breiðablik

Hrafnhildur gæti sprungið út hjá Breiðabliki í sumar. Þessi sautján ára miðjumaður fékk nasaþefinn af Blikaliðinu í fyrra og lék hverja einustu mínútu í Lengjubikarnum í vetur. Hrafnhildur fær væntanlega drjúgan spiltíma í sumar. Hún hefur leikið 32 leiki og skorað níu mörk fyrir yngri landslið Íslands.

Birgitta Rún Finnbogadóttir, Tindastóll

Birgitta lék tíu leiki í Bestu deildinni í fyrra og spilaði mikið í Lengjubikarnum í vetur. Líkt vinkona hennar í Tindastólsliðinu, Elísa Bríet Björnsdóttir, er Birgitta frá Skagaströnd. Og þrátt fyrir að vera fædd 2008 á hún eflaust eftir að láta mikið að sér kveða í sumar.

Fanney Lísa Jóhannesdóttir, Stjarnan

Fanney Lísa er einn allra efnilegasti leikmaður landsins. Þessi markheppni framherji er fæddur 2009 og á framtíðina fyrir sér. Fanney spilaði talsvert með Stjörnunni í vetur og skoraði meðal annars eitt mark í Lengjubikarnum. Hún hefur skorað þrjú mörk í fimm leikjum fyrir yngri landslið Íslands.

Selma Sól Sigurjónsdóttir, FH

Selma Sól skoraði tólf mörk fyrir ÍH í 2. deildinni í fyrra eftir að hafa leikið með FH sumarið 2022. Hún er nú komin aftur til Fimleikafélagsins og spilaði alla leiki liðsins í Lengjubikarnum og skoraði þrjú mörk. Sólin hennar Selmu gæti skinið skært í sumar.

Sigurborg Katla Sveinbjörnsdóttir, Víkingur

Katla átti frábært sumar í marki Víkings í fyrra og sló í gegn. Hún er fædd 2006 og er einn af mörgum efnilegum markvörðum sem við eigum. Katla fær mikla eldskírn í sumar verður að eiga gott tímabil ef Víkingur ætlar að gera sig gildandi í deild þeirra bestu. Hún var hetja Víkings í vítakeppninni gegn Val í Meistarakeppni KSÍ á þriðjudaginn.

Helga Guðrún Kristinsdóttir, Fylkir

Helga Guðrún fellur ekki beint í hóp ungra og efnilegra leikmanna en þessi grindvíski kantmaður er 26 ára og hefur reynslu úr efstu deild. Hún hefur hins vegar ekki spilað þar í nokkur ár og vonast væntanlega eftir að geta fylgt eftir góðu sumri í fyrra þar sem hún skoraði átta mörk og lagði upp níu í Lengjudeildinni.

Sigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir, Keflavík

Hjá nýliðum Keflavíkur eru nokkrir ungir og spennandi leikmenn, meðal annars miðjumaðurinn Sigurbjörg Diljá sem er fædd 2008. Hún lék fjóra af fimm leikjum Keflvíkinga í Lengjubikarnum og verður væntanlega í byrjunarliði þeirra í sumar.



[ad_2]

Source link

Notícias

Indonésia, Republika, Indonésio

[ad_1] REPUBLIKA.CO.ID, JAKARTA — Direktur Jenderal Bea dan Cukai Kementerian Keuangan Askolani buka suara soal tingginya sanksi administrasi barang impor. Dia menjelaskan besaran sanksi administrasi

Indonésia, Indo Pos, Indonésio

[ad_1] Harianjogja.com, DEPOK—Ombudsman Republik Indonesia (ORI) DIY meminta masyarakat untuk melapor jika menemui tiang-tiang kabel yang tampak semrawut. Laporan-laporan yang datang dari masyarakat ini akan

Hong Kong, South China Morning Post, Inglês

[ad_1] Hong Kong authorities will step up enforcement on illegal ride-hailing services and rogue taxi drivers over the coming Labour Day “golden week” holiday, while

Tailândia, Business Day News, Tailandês

[ad_1] มูลนิธิสุญญตาวิหารเผยหลักสูตรการดับทุกข์สำหรับผู้บริหารระดับสูงรุ่นแรก มีผู้สนใจในช่วงสองอย่างล้นหลาม รองประธานมูลนิธิฯเผยมีทั้งอดีตรัฐมนตรี อดีต สว. และอดีตปลัดกระทรวง สนใจ ชี้หลักสูตรนี้เหมาะกับโลกในยุคปัจจุบัน นายสมชาย เลิศด้วยลาภ รองประธานมูลนิธิสุญญตาวิหาร เปิดเผยว่าด้วยสถานการณ์ปัจจุบันสิ่งที่เกิดขึ้นทั้งในประเทศไทยและในโลก ทั้งปัญหาสังคม ปัญหาเศรษฐกิจ ปัญหาทุกอย่างอีกมากมายที่เกิดขึ้น สำหรับผู้บริหารจะมีการรับรู้และรับผิดชอบมากกว่าบุคคลทั่วไป ทั้งผู้บริหารหน่วยงานภาครัฐ และผู้บริหารหน่วยงานภาคเอกชน โดยทุกข์ที่เกิดขึ้นนั้น เกิดเพราะความรับผิดชอบที่มีต่อตัวเอง หน่วยงานและสังคม รวมถึงประเทศการเป็นทุกข์สำหรับผู้บริหารแล้ว มักจะไม่สามารถบอกหรือปรึกษาใครได้ เพราะความน่าเชื่อถือและความคาดหวังของคนในองค์กร