Strætisvagn fór á hliðina í kvöld á þjóðveginum á Norðurlandi vestra.
Samkvæmt ábendingu til fréttastofu varð slysið á áttunda tímanum rétt norðan við Staðarskála. Ekki hefur náðst í viðbragðsaðila vegna málsins né í forsvarsmenn Strætó.
Hvasst hefur verið á landinu í dag. Samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar er hált á Holtavörðuheiði og éljagangur.
Veistu meira um málið? Sendu okkur línu á [email protected].